ice67 vegur (radio edit) şarkı sözleri
Ungur ég var með gleði og kraft
Hljóp yfir vegi og stökk yfir skaft
Pollarnir skvettu ég dansaði dátt
Á mjóum malar vegum með brosið mitt kátt
Vegirnir breytast lítið þó malbik sé lagt
Holurnar standa eins og þeim er það sagt
Peningum sóað í spillingar mál
En vegurinn heima……… er samt eins og þá
Þegar ég óx úr grasi varð ég fljótur að sjá
Vegirnir okkar þeir lítið fé fá
Þó malbik sé nýtt og allt skuli skína
Er alltaf ein hola sem gleymist að líma
Skildi maður sjá alla leið til Kína!
Þingmenn þeir tala en gera ei neitt
Skammast sig lítið og loforð gerast seint
Ef ég fengi valdið vildi þá breyta
Fylla í holur og vegina skreyta! ꜜ
Vegirnir breytast lítið þó malbik sé lagt
Holurnar standa eins og þeim er það sagt
Peningum sóað í spillingar mál
En vegurinn heima……… er samt eins og þá
Vegirnir breytast lítið þó malbik sé lagt
Holurnar standa eins og þeim er það sagt
Peningum sóað í spillingar mál
En vegurinn heima mun ekki lagast í bráð