ingi þór ljósið leitar heim şarkı sözleri
Þannig er með suma hluti
Þeim verður ekki breytt
Sama hvað þú áfram reynir
Það breytist ekki neitt
Fyrirgefning fæst hjá sumum
Aðrir bíða og sjá
Að lokum eru nokkrar sálir
Sem aldrei betrun fá
En þegar bjátar á
Skaltu muna þá
Að eftir dimman dag
Má oft sjá nýjan brag
Og að lokum ljósið leitar heim
Þær týndu sálir sem eftir verða
Feta örlaganna braut
Sumar deyja, öðrum vegnar
Vel í lífsins þraut
Gleymum ekki týndum sálum
Sem okkur standa næst
Því engin veit hvað er og verður
Hver síðast hlær svo hæst
En þegar bjátar á
Skaltu muna þá
Að eftir dimman dag
Má oft sjá nýjan brag
Og að lokum ljósið leitar heim
En þegar bjátar á
Skaltu muna þá
Að eftir dimman dag
Má oft sjá nýjan brag
Og að lokum ljósið leitar heim

