ingveldur ekki hringja, ég er upptekin / kysstu mig með ljósin kveikt (double feature) şarkı sözleri
Ekki hringja ég er upptekin
Ég kveiki í en dreg reykinn aldrei inn
Er ég einmanna eða bara ein
Svolítill skaði getur varla gert mein
Fyrirgefðu mér ef ég vísa þér á dyr
Forvitinn er ei alltaf sá sem spyr
Með skjálfandi hönd ég tek upp tól
En titrandi röddin sér aldrei sól
Ekki hringja ég er upptekin
Ég fæ kökk í hálsinn hvert sinn sem ég lýg
Ég bugast bara meira við hvert skref sem ég stíg
Held ég haldi mig heima því mér er svo kalt
En við hittumst aftur og þú segir mér allt
Með gluggana opna og herbergið læst
Ég vil ekki vita hvað skeður næst
Veit ekki hvernig ég skal mér hegða
Þegar ákveðið nafn lætur mér alltaf bregða
Ekki hringja ég er upptekin
Ekki hringja ég er upptekin
Ekki leggja það á mig að vona það besta
Gerðu það veittu mér svigrúm til þess að bresta
Mér þykir það leitt, ég held ég verði að fresta
Ekki hringja, ég er upptekin
Ekki hringja, ég er upptekin
Ekki hringja, ég er upptekin
Er í lagi að ég staldri
Staldri við um stutta stund
Fái þig á minn fund
Haltu mér einfaldri
Gakktu ei um hreinan huga
Látum okkur sjálf bara duga
Marin og blá ég sný að þér
Taktu mér eins og ég er
Með stýrur í augum og blóð á kinn
Lánað þú mér skjöldinn þinn
Komdu að mér kaldri
Og kysstu mig með ljósin kveikt
Þú þarft ekki að afsaka neitt
Og ég skelf og ég titra undir þér
Ó almáttugur hjálpi mér
Og ég veit að þú veist að ég veit
Svo við höldum á byrjunarreit
Já við höldum á byrjunarreit

