kaelan mikla astarljod şarkı sözleri

Hvernig gátu hunangsgylltar hlíðar og bjargvættar bláminn í björgunum skyndilega skotist á brott. Skelfingar skugginn er kuldalegur, vorið var vonbrigði og sumarið þrældómur vetrarins. Ég er volandi vændiskona, veggja sem hindra mínar gleðinnar glæstu framtíðar drauma. Ég man þegar ég speglaðist í gullslegnu vatni og sá þá sjálfa mig brosa. Svanurinn sem kenndi mér forðum að fljúga er nú farinn, floginn á brott. Og ég sit hérna eftir, alveg vængjalaus og velti því fyrir mér hvort ég fái nokkurntíman aftur að fljúga. Ég festi mig við arfa í garðinum. Hjartað er við það að springa. Skelfingar skjálfti í líkama mínum ríkir og reiðin er óflýjanleg. Líkami minn er ólgusjór og ég vona að þið drukknið öll með mér Hjartsláttur minn er óreglu öldugangur og lungun mín fyllast af vatni. Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín, svo ég fái kannski að hitta þig aftur.
Sanatçı: Kaelan Mikla
Türü: Belirtilmemiş
Ajans/Yapımcı: Belirtilmemiş
Şarkı Süresi: 3:28
Toplam: kayıtlı şarkı sözü
Kaelan Mikla hakkında bilgi girilmemiş.

Fotoğrafı